Fréttatilkynning vegna atburða í Grindavík


Vísir ehf., dótturfélag Síldarvinnslunnar hf., sem er með starfsemi sína í Grindavík, hefur unnið af því að undirbúa og innleiða varnir og áætlanir til samræmis við þær sviðsmyndir sem almannavarnir og jarðvísindamenn höfðu sett fram í tengslum við jarðhræringar á Reykjanesi. Vörðuðu þær flestar áhrif tjóns á innviðum utan Grindavíkur, s.s. á raforkuver og hitaveitu. Ljóst er að þróunin undanfarna sólarhringa hefur verið önnur og verri gagnvart byggð í Grindavík en þær sviðsmyndir gerðu ráð fyrir.

Staða mála hefur ekki áhrif á starfsemi útgerðar en fiskvinnsla í Grindavík hefur stöðvast. Stjórnendur vinna við að bregðast við aðstæðum og munu taka ákvarðanir í samræmi við þróun mála.

Stjórnendur hafa yfirfarið stöðu félagsins út frá vátryggingarvernd og telja fasteignir og lausafé félagsins í Grindavík vera vel tryggt í samræmi við lög vegna hugsanlegs tjóns af völdum jarðhræringanna. Starfsmenn og stjórnendur vinna að því að verja verðmæti sem bundin eru í hráefnis- og afurðabirgðum í samráði og samvinnu við yfirvöld.

Stjórnendur leggja áherslu á að hlúa að starfsfólki og halda sambandi við það.


Virðingarfyllst

Gunnþór Ingvason

Forstjóri

Síldarvinnslan hf.