Uppgjör Síldarvinnslunnar fyrir fyrsta ársfjórðung 2021


Uppgjör Síldarvinnslunnar fyrir fyrsta ársfjórðung 2021

Starfsemin á fyrsta fjórðungi ársins

  • Loðnuvertíðin var góð þrátt fyrir lítið aflamark. Vel tókst að hámarka verðmæti hráefnisins. Mest allar birgðir eru seldar en hafa ekki verið afhentar kaupendum.
  • Samkeppniseftirlitið samþykkti kaup Bergs-Hugins ehf. á Bergi ehf. hinn 25. febrúar sl. aflaheimildir Bergs voru 1.549 þíg tonn.
  • Samþykkt var á hluthafafundi í Síldarvinnslunni 26. mars sl .að afhenda SVN-eignafélag ehf. hluthöfum. Eiginfjárhlutfall Síldarvinnslunnar fór tímabundið í 58% en verður 65% eftir 9. apríl sem er arðgreiðsludagur hjá félaginu. Ófærður söluhagnaður að fjárhæð 24,2 milljónir USD verður færður á öðrum ársfjórðungi.
  • Endurfjármögnun langtímalána lauk í lok febrúar og í byrjun maí var skammtímaláni Bergs-Hugins breytt í langtímalán.
  • Þann 4. mars sl. var skrifað undir samning við Vélsmiðjuna Héðinn um fyrri áfanga framkvæmda við fiskimjölsverksmiðjuna í Neskaupstað.
  • Í byrjun apríl var gengið frá kaupum á 12,4% hlut í Runólfi Hallfreðssyni ehf. Verður félagið sameinað Síldarvinnslunni frá og með 1. júlí nk.
  • Nýr Börkur var afhentur félaginu í lok maímánaðar.

Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri fyrsta ársfjórðungs

  • Hagnaður tímabilsins var 21,1m USD.
  • Tekjur voru 52,4m USD og hækkuðu um 23,1m USD frá sama tímabili í fyrra.
  • EBITDA er 19,9m USD og EBITDA% 37,9.
  • Eiginfjárstaðan er sterk og eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins 58%.

Rekstur

Tekjur á fyrsta ársfjórðungi námu 52,4m USD samanborið við 29,3m USD á sama tímabili í fyrra.   Rekstarhagnaður eykst um 28,7m USD á milli tímabila sem skýrist fyrst og fremst af loðnuvertíð. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 19,9m USD eða 37,9% af rekstrartekjum, en var 8,3m USD eða 10,6% á fyrsta ársfjórðungi 2020.

Hagnaður fyrir tekjuskatt var 25,2m USD samanborið við tap að fjárhæð 9,3m USD á fyrsta fjórðungi 2020. Tekjuskattur var 4,2m USD og hagnaður fyrsta ársfjórðungs 2021 því 21,1m USD samanborið við 7,7m USD tap fyrsta fjórðungs 2020.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 611m USD í lok fyrsta ársfjórðungs 2021. Þar af voru fastafjármunir 482m USD og veltufjármunir 129m USD.

Breyting á veltufjármunum frá lokum árs 2020 er skýrð með lækkun á handbæru fé sem nemur 35,9m USD. Fjárhagsstaða félagsins er sterk og nam eigið fé 356m USD og var eiginfjárhlutfall 58% í lok ársfjórðungsins samanborið við 68% í lok árs 2020. Lokið er við að skuldfæra 52,3m USD vegna SVN-eignafélags í reikningunum 31. mars sl. en þegar eignafélagið var afhent 9. apríl sl. hækkaði eiginfjárhlutfallið í 65%.

Heildarskuldir félagsins voru 255m USD í lok fjórðungsins og hækkuðu um 72m USD sem skýrist af framansögðum aðgerðum vegna SVN-eignafélags. Vaxtaberandi skuldir voru 123,4m USD og hækkuðu um 7,5m USD frá áramótum.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 9,3m USD á fyrsta ársfjórðungi 2021 en var 22,3m USD á fyrsta fjórðungi 2020. Fjárfestingarhreyfingar voru 54m USD á fyrsta ársfjórðungi og skýrast þær helst af kaupunum á Bergi ehf. og smíði á nýjum Berki NK.

Meginniðurstöður í íslenskum krónum

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta ársfjórðungs ársins 2021 (1 USD=128,05 kr) verða tekjur 6,7 milljarðar króna, EBITDA 2,5 milljarðar og hagnaður 2,7 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2021 (1 USD=126,31 kr) verða eignir samtals 77,2 milljarðar króna, skuldir 32,3 milljarðar og eigið fé 44,9 milljarðar.

Samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Síldarvinnslunnar 31. maí 2021. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþóðlega reikningsskilastaðla (IFRS- International Financial reporting Standards).

Kynningarfundur 31. maí 2021

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn mánudaginn 31. maí kl. 16:30 í Safnahúsinu í Neskaupstað. Kynningunni verður einnig streymt á netinu á eftirfarandi slóð: Kynningafundur uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2021 - SVN. Slóðina á vefstreymið má einnig finna á heimasíðu Síldarvinnslunnar www.svn.is.

Þá verður hægt að senda spurningar á netfangið fjarfestir@svn.is og reynt verður að svara þeim á kynningarfundinum eftir fremsta megni.

Fjárhagsdagatal

2. ársfjórðungur 2021 – 27. ágúst 2021
3. ársfjórðungur 2021 – 26. nóvember 2021
4. ársfjórðungur 2021 – 25. febrúar 2022

Nánari upplýsingar

Gunnþór Ingvason, forstjóri

Viðhengi



Attachments

SVN samstæða - árshlutareikn 31.3.2021 Síldarvinnslan_Uppgjörskynning_1. ársfj. 2021