Kynningarfundur fyrir uppgjör annars ársfjórðungs


Síldarvinnslan hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. ágúst 2021.

Fjárfestakynning verður föstudaginn 27.ágúst kl. 09:00, þar mun Gunnþór Ingvason, forstjóri kynna uppgjör félagsins og fara yfir ástand og horfur.
Fjárfestakynningin verður eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestir@svn.is.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, www.svn.is/fjarfestar/


Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.


Nánari upplýsingar veitir Axel Ísaksson, fjármálastjóri í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is.


Recommended Reading