Tilkynning frá Eimskip


Böðvar Örn Kristinsson sem tímabundið hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Innanlandssviðs  mun frá og með deginum í dag taka við þeirri stöðu til frambúðar. Böðvar Örn hefur starfað hjá Eimskip í 17 ár í verkefnum sem tengjast innanlandsflutningum m.a. í sölumálum og sem rekstrarstjóri á Innanlandssviði. Síðustu ár hefur hann svo starfað sem forstöðumaður innanlandsflutninga og hefur því víðtæka þekkingu á félaginu sem og flutningageiranum.

Böðvar er með B.S. í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og M.Sc. í flutningahagfræði og flutningaþjónustu frá Erasmus University í Rotterdam. Böðvar er giftur Þórdísi Ómarsdóttur og eiga þau þrjú börn.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.