Festi hf.: Tilkynning frá stjórn


Í tilefni af fréttaflutningi undanfarna daga af væntum starfslokum forstjóra félagsins og nú síðast fyrirspurn frá kauphöll um málið vill stjórn Festi hf. kom eftirgreindu á framfæri:

Stjórn Festi hf. hafði forgöngu að samtali við forstjóra um starfslok hans fimmtudaginn 2. júní 2022. Við þær aðstæður óskaði forstjóri eftir að fá að segja upp störfum í stað þess að honum yrði sagt upp, með hagsmuni sjálf síns og félagsins í huga. Var fallist á þá málaleitan og náðust samningar samdægurs á milli félagsins og forstjóra um starfslok hans eins og tilkynning til kauphallar þann dag ber með sér.

Með því taldi stjórn að málinu væri lokið og sátt væri um málsmeðferðina. Enginn ágreiningur er um að stjórn hafði forgöngu um starfslokin og að málið var leitt til lykta með samkomulagi við forstjóra í kjölfarið, enda eitt aðalverkefni stjórnar. Samtal við hluthafa þegar svona ferli stendur yfir, eins og ákall virðist vera um, er beinlínis á skjön við reglur kauphallarinnar.

Stjórnin stendur við ákvörðun sína og byggir hana á því mati að félagið standi nú á tímamótum eftir mörg ár uppbyggingar og mótunar. Þessi tímamót, á sama tíma og samkeppni er að aukast á öllum rekstrarsviðum félagsins og ólík verkefni blasa við, kalla á nýja nálgun og nýjar hendur til að vinna verkin. Hluthafar geta að sjálfsögðu haft aðra skoðun á þessu máli og komið þeirri skoðun á framfæri við stjórn eftir viðeigandi boðleiðum. Erfitt er hins vegar að taka það samtal í smáatriðum á hluthafafundi, þar sem til staðar eru, auk hluthafa, fjölmiðlar og fulltrúar samkeppnisaðila.

Tenging þessa máls við mál fyrrverandi stjórnarformanns, aðdraganda afsagnar hans, og fleiri vangaveltur af þeim meiði, eiga sér hins vegar enga stoð í raunveruleikanum og er vísað algjörlega á bug.

Á sama tíma gerir stjórn sér grein fyrir, eins og samkeppnisyfirvöld, að eignarhald skráðra félaga á Íslandi, þar sem lífeyrissjóðir fara oft sameiginlega með meirihluta hlutafjár í samkeppnisaðilum, er vandmeðfarið og krefjandi. Lífeyrissjóðir verða að tryggja virka samkeppni samkeppnisaðila sem þeir eiga hluti í. Þá verður einnig að horfa til þess að Festi hf. er aðili að sátt við samkeppnisyfirvöld sem virða ber í hvívetna.

Það er eindregin ósk og eina leiðarljós stjórnar að friður myndist um starfsemi félagsins, starfsfólk þess og stjórnendur, hluthöfum öllum til hagsbóta. Félagið býr að öflugri framkvæmdastjórn og kröftugu starfsfólki um land allt sem er tilbúið í framtíðina.