Fréttatilkynning frá Eimskip


Vísað er til fréttatilkynninga frá 8. og 29. apríl 2021 varðandi niðurstöðu héraðsdóms sem ákveðið var að vísa til Landsréttar, sbr. skýringu 26 í ársreikningi félagsins fyrir árið 2021.

Í dag barst niðurstaða Landsréttar í málinu en samkvæmt henni er kröfum félagsins um ómerkingu á úrskurði yfirskattanefndar hafnað.

Með vísan til áður birtra upplýsinga hefur þessi niðurstaða engin áhrif til gjalda eða greiðslu. Málskostnaður á báðum dómsstigum er látinn niður falla.

Eimskip, sem rekstraraðili kaupskipa í alþjóðlegri samkeppni, er ósammála þessari niðurstöðu og mun áfrýja málinu til Hæstaréttar.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is