Fundurinn er haldinn rafrænt og í Safnahúsinu Neskaupstað þann 18. ágúst 2022 kl. 14.
Dagskrá fundarins er í samræmi við fundarboðun.
Meðfylgjandi er tillaga um heimild til hlutafjárhækkun sem lögð verður fram fyrir fundinn ásamt kynningu vegna kaupa á hlutabréfum í Vísi hf. Meðfylgjandi eru einnig skýrsla stjórnar og umsögn endurskoðanda um skýrslu stjórnar ásamt fylgiskjölum. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2021 og árshlutareikningur fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 er að finna á heimasíðu félagsins.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á https://www.lumiconnect.com/meeting/svnaugust22 eigi síðar en kl. 16.00 þann 17. ágúst 2022, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://svn.is/fjarfestar/
Viðhengi
- 2022 08 11 Skýrsla stjórnar sbr 33 gr
- 20220811 Kynning fyrir hluthafafund SVN þann 18. ágúst 2022
- Tillaga stjórnar um heimild til hækkunar í tengslum við kaup á Vísi hf. 110822
- UR Síldarvinnslan hf. - Skýrsla ISRS 4400 (revised)
- UR umsögn endurskoðanda SVN 11.08.2022