Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2022


Kynningarfundur 4. nóvember 2022

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 3. nóvember 2022.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 4. nóvember nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.

Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.com.