Eimskip birtir ársreikning 2022 og uppgjör fjórða ársfjórðungs


Kynningarfundur 15. febrúar 2023

Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning 2022 og uppgjör fjórða ársfjórðungs 2022 eftir lokun markaða þriðjudaginn 14. febrúar 2023.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri og María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar nk. kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð.

Fundurinn verður einnig sendur út í gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið investors@eimskip.com.

Uppgjörsgögn og upptöku verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri í síma 774-0604 eða á investors@eimskip.com.