Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Frambjóðendur til stjórnar og endanlegar tillögur og dagskrá aðalfundar 2023.


Fundurinn er haldinn rafrænt og í Safnahúsinu Neskaupstað þann 18. apríl 2023 kl. 14. Fundurinn átti upphaflega að vera þann 30. mars sl. en var frestað vegna snjóflóðanna í Neskaupstað.

Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem eru í kjöri á aðalfundinum 18. apríl 2023. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur fimm menn í stjórn og tvo til vara. Sex einstaklingar eru í kjöri til aðalstjórnar en tveir til varastjórnar.

Engar breytingar eru á fyrirliggjandi tillögum fyrir fundinn eða áður birtri dagskrá. Tillögur eru meðfylgjandi.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, þurfa að skrá sig á https://www.lumiconnect.com/meeting/svn2023 eigi síðar en kl. 16.00 þann 17. apríl 2023, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://svn.is/fjarfestar/

 

Viðhengi



Attachments

Framboð við kjör stjórnar á aðalfundi í Síldarvinnslunni hf.  2023 SVN - tillögur fyrir aðalfund 2023 18. apríl 2023