Festi hf.: Endurkaup vika 30


Í 30. viku 2023 keypti Festi alls 32.887 eigin hluti fyrir 6.278.530 kr. eins og hér segir:

VikaDagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð
3025.07.202313:34:5430.0001915.730.000
3027.07.202313:20:451.000190190.000
3027.07.202315:13:211.887190358.530
   32.887 6.278.530


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 8.000.000 hluti eða 2,56% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 32.887 eigin hluti fyrir 6.278.530 kr. og á í dag 8.032.887 hluti sem samsvarar 2,57% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,12% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónum króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).


Recommended Reading