Festi hf.: Endurkaup vika 33


Í 33. viku 2023 keypti Festi alls 280.000 eigin hluti fyrir 54.602.500 kr. eins og hér segir:

VikaDagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð
3314.ágú14:20:5170.000194,2513.597.500
3315.ágú12:36:0670.00019513.650.000
3316.ágú11:20:2030.000195,55.865.000
3316.ágú13:39:0540.0001967.840.000
3317.ágú13:46:4270.00019513.650.000
   280.000 54.602.500


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 8.388.176 hluti eða 2,68% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 668.176 eigin hluti fyrir 128.767.365 kr. og á í dag 8.668.176 hluti sem samsvarar 2,77% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,12% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).


Recommended Reading