Rarik ohf. efnir til útboðs á nýjum grænum skuldabréfaflokki RARIK 100633 GB miðvikudaginn 3. júní 2026 næstkomandi. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins undir grænni fjármögnunarumgjörð.
Skuldabréfaflokkurinn RARIK 100633 GB er verðtryggt vaxtagreiðslubréf til 7 ára, með vaxtagreiðslum á 6 mánaða fresti. Skuldabréfin bera fasta vexti sem ákvarðast í útboðinu. Skuldabréfin eru gefin út í 20.000.000 kr. nafnverðseiningum
Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir þó eigi síðar en fyrir opnun markaða fimmtudaginn 4. júní 2026. Greiðslu og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 10. júní 2026.
Stefnt er að skráningu skuldabréfaflokksins og töku hans til viðskipta á Nasdaq Iceland á næstu mánuðum.
Landsbankinn hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað til Landsbankans hf. fyrir kl. 16:00 á útboðsdegi, miðvikudaginn 3. júní 2026, á netfangið: verdbrefamidlun@landsbankinn.is
Rarik ohf. birti í apríl 2026 umgjörð um græna fjármögnun í þeim tilgangi að geta gefið út græna fjármálagerninga. Umgjörðin gerir félaginu kleift að fjármagna eða endurfjármagna verkefni sem styðja við orkuskipti, uppbyggingu og endurnýjun dreifikerfis og aðra sjálfbæra orkuinnviði í samræmi við stefnu og markmið félagsins um sjálfbærni og ábyrgan rekstur. Umgjörðin hefur hlotið vottun frá Moody’s Ratings, sem er alþjóðlega viðurkenndur vottunaraðili. Umgjörðin hlaut hæstu einkunn Moody’s Ratings, SQS1 (excellent). Nánari upplýsingar um grænu umgjörðina og sjálfbærnivegferð félagsins má finna á vef félagsins: Umgjörð um græna fjármögnun
Frekari upplýsingar veita:
Elísabet Ýr Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Rarik, í síma 842 9244 eða elisve@rarik.is
Gunnar S. Tryggvason, Verðbréfamiðlun Landsbankans, í síma 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is